| 1a) |
Sjóðurinn heitir Verkefnasjóður ÍF og er stofnaður af stjórn ÍF með stofnframlagi að upphæð kr. 1.000.000.- Stofnframlagið samanstendur auk framlags stjórnar ÍF af ógreiddri eldri úthlutun til óvirkra aðildarfélaga ÍF. |
| 1b) |
Tekjur sjóðsins eru:
| |
i. |
Árleg fjárveiting samkvæmt ákvörðun stórnar ÍF |
| |
ii. |
Ósóttar lottógreiðslur óvirkra aðildarfélaga samkvæmt 50% úthlutunarreglunni |
| |
iii. |
Frjáls framlög og söfnunarfé |
| |
iv. |
Vaxtatekjur | |
| 1c) |
Formaður og gjaldkeri fara með stjórn Verkefnasjóðs ÍF og gera þeir tillögur um úthlutun til stjórnar ÍF, eftir umsóknum sem berast til sjóðsins. |
| 1d) |
Umsóknir í Verkefnasjóð skulu berast stjórn sjóðsins a.m.k. tveimur vikum fyrir stjórnarfundi ÍF. |
| 1e) |
Umsóknum í Verkefnasjóð skal fylgja fjárhagsáætlun yfir það verkefni sem sótt er um styrk til, og eftir atviku reikningar og áætlanir. |