Fötluðum börnum og unglinum gefið tækifæri á að vera virkir þátttakendur á æfingum hjá almennu knattspyrnufélagi.
Á næstunni verður hleypt af stokkunum knattspyrnuæfingum fyrir fatlaða hjá KR og munu þeir kynna verkefnið á næstunni og æfingar hefjast í kjölfarið. Markmiðið er að gefa fötluðum börnum og unglinum tækifæri að vera virkir þátttakendur hjá almennu knattspyrnufélagi.
Æfingatímar verða eftirfarandi: mánudagar kl. 20:30 fyrir eldri hóp og laugardagar kl. 15:30 fyrir yngri hóp en þessir tímar verða kynntir betur síðar.
Íþróttasamband fatlaðra er umsjónaraðili starfsemi Special Olympics á Íslandi. Evrópusamtök Special Olympics og UEFA hafa byggt upp samstarf á sviði knattspyrnu fyrir fatlaða en óskað var eftir því að aðildarlönd samtakanna starfi með knattspyrnusamböndum í hverju landi að þessu verkefni.
Samstarf ÍF og KSÍ hefur tengst Íslandsleikum Special Olympics og sparkvallaverkefni þar sem boðið er upp á opnar æfingar fyrir fatlaða. Markmið samstarfsins er að efla þátttöku fatlaðra í knattspyrnu og stuðla að því að knattspyrna sé í boði fyrir fatlaða um land allt.
Þriðjudaginn 16. desember fóru fulltrúar KSÍ og ÍF á fund KR þar sem rætt var samstarf á þessu sviði. Áhugi kom fram hjá KR að standa að æfingum fyrir fötluð börn og unglinga á árinu 2009.
Jafnframt verður reynt að stuðla að því að þeir sem þess óska geti verið á æfingum með sínum jafnöldrum. Meginmarkmið er að skapa valkost sem gerir fötluðum börnum og unglingum kleift að vera virkir þátttakendur á æfingum hjá almennu knattspyrnufélagi.
Nánari upplýsingar gefur Stefán Arnarson í síma: 510-5310 og e-mail stefan@kr.is
Ef önnur félög eru áhugasöm um æfingar sem slíkar er þeim bent á að hafa
samband við Guðlaug Gunnarsson, starfsmann KSÍ, gulli@ksi.is