Íþróttasamband fatlaðra er umsjónaraðili starfsemi Special Olympics á Íslandi. KSÍ hefur verið í samstarfi við Special Olympics á Íslandi vegna ýmissa verkefna m.a. Íslandsleika í knattspyrnu.
Íþróttagreinastjóri Special Olympics í knattspyrnu er starfsmaður KSÍ og hefur verið fulltrúi Íslands á fundum og ráðstefnum erlendis um knattspyrnumál Special Olympics.
KSÍ aðstoðaði við þróun verkefnisins Unified football, þar sem fatlaðir og ófatlaðir keppa saman en verkefnið er alþjóðaverkefni Special Olympics. Þá var einnig samstarfsverkefni sett á fót tengt uppsetningu sparkvalla KSÍ
Með þessum samstarfssamningi hefur samstarfið verið sett í formlegan farveg en aðildarlönd Special Olympics International hafa verið hvött til að koma á fót formlegu samstarfi við knattspyrnusambönd í sínu heimalandi.
Ísland er eitt af fyrstu aðildarlöndum SOI sem staðfesta slíkt samstarf formlega. KSÍ mun hvetja knattspyrnufélög um land allt til samstarfs á þessu sviði og kynna samstarfið í í tengslum við þjálfaranámskeið barna og unglinga.
Á myndinni eru Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF og Special Olympics á Íslandi við undirritun samningsins.