Ţriđjudagur 28. janúar 2014 09:42

EM í sundi í Eindhoven 4.-10. ágúst


Alţjóđaólympíuhreyfing fatlađra, IPC, tilkynnti nú í morgun ađ Evrópumeistaramót fatlađra í sundi í 50m laug fari fram í Eindhoven í Hollandi dagana 4.-10. ágúst nćstkomandi. Ţađ verđur ţví skammt stórra högga á milli hjá fötluđu afreksfólki í sumar ţví 18.-23. ágúst fer EM fatlađra í frjálsum fram í Swansea í Wales.
 
Gert er ráđ fyrir um 500 keppendum á EM í sundi frá um ţađ bil 40 löndum. EM er stćrsta mótiđ sem fatlađir sundmenn taka ţátt í áđur en HM fer fram í Glasgow 2015 og svo sjálft Ólympíumótiđ í Ríó í Brasilíu áriđ 2016.
 
Keppt verđur í Pieter van den Hoogenband höllinni, ţeirri sömu og hýsti HM 2010.

Mynd/ Sundkonan Thelma B. Björnsdóttir, ÍFR, mun vísast láta vel ađ sér kveđa á EM í Hollandi en Thelma syndir í flokki S6 sem er flokkur hreyfihamlađra. Hreyfihamlađir sundmenn synda í flokkum S1-S10, ţeim mun lćgri sem talan er ţeim mun meiri skerđingu á hreyfigetu einstaklingsins er ađ rćđa.

Til baka