Mánudagur 19. janúar 2009 09:11

Skíðanámskeið ÍF og VMÍ í samstarfi við Winter Park

Hlíðarfjalli, Akureyri 13.-15. febrúar 2009

Föstudagur 13. febrúar;    

Kl. 12:30: Mæting í Hlíðarfjall. Kynning á útbúnaði og  ráðgjöf  fyrir skíðakennara, starfsfólk skíðasvæða, þá sem koma á einn eða annan hátt að fötluðum og aðra þá sem áhuga hafa á að kynna sér þessi mál. Reiknað er með að flestir taki einnig þátt í námskeiðinu á laugardag og sunnudag.

Kl.15: Allir þátttakendur helgarinnar mæta í Hlíðarfjall. Fá upplýsingar um námskeiðið og máta skíðabúnað.

Kl. 18: Opinn kynningarfundur um skíðamennsku og útivist fatlaðra í Íþróttahöllinni.
Allir velkomnir

Laugardagur 14. febrúar og sunnudagur 15. febrúar;    (9:30 – 16)

Námskeið þar sem fatlaðir einstaklingar / aðstandendur og aðstoðarfólk fá kennslu og ráðgjöf með verklegum æfingum og fræðslu.  Á sunnudeginum kl. 15:30 verður stuttur fundur og námskeiðsslit.

Ath. Takmarka þarf þátttökufjölda fatlaðra einstaklinga m.t.t. tækja og fjölda leiðbeinenda.   

Íslenskir leiðbeinendur og aðstoðarfólk verða á staðnum og þeim til ráðgjafar verður Beth Fox,  frá Winter Park í Colorado.  Hún mun einnig veita ráðgjöf varðandi val á útbúnaði s.s. skíðasleðum sé áhugi á að kaupa slík tæki.

Þátttakendur sjá sjálfir um gistingu og fæði.
Námskeiðsgjald kr; 5.000 - 

Opinn kynningarfundur um skíðamennsku og útivist fatlaðra verður haldinn föstudagsvöldið 13. febrúar kl. 18 í Íþróttahöllinni Akureyri

Nánari upplýsingar gefa fulltrúar vetraríþróttanefndar ÍF;
Þröstur Guðjónsson, 896 1147 sporri@internet.is  / Guðný Bachmann, 820 1663 gudnybachmann@hotmail.com

Staðfesta þarf skráningar fyrir 1. febrúar 2009

Vetraríþróttamiðstöð Íslands             Íþróttasamband Fatlaðra 
 hliðarfjall@hliðarfjall.is  /4622280    annak@isisport.is / 5144080

Til baka