Föstudagur 23. janúar 2009 09:39

Golfæfingar fyrir hreyfihamlaða

Samkomulag hefur tekist á millum Golfsamtaka fatlaðra og Magnúsar Birgissonar um að hefja golfæfingar og kennslu fyrir hreyfihamlaða.

Næsta miðvikudag, 28. janúar, kl. 17:00-18:00 verða æfingar í æfingastöð Golfklúbbs Keilis í Hafnarfirði.

Nánari upplýsingar veitir Hörður Barðdal – hordur@ehp.is

Til baka