Miðvikudagur 23. apríl 2014 15:13

KSÍ fær viðurkenningu fyrir samstarf við Special Olympics á Íslandi


Viðurkenningin afhent á fundi Evrópusamtaka Special Olympics í Varsjá

Knattspyrnusamband Íslands hlaut á dögunum viðurkenningu frá Evrópusamtökum Special Olympics fyrir farsælt samstarf við Special Olympics á Íslandi. Það var Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ, sem veitti viðurkenningunni móttöku á ráðstefnu Special Olympics í Varsjá í Póllandi. Hann er íþróttagreinastjóri Special Olympics í knattspyrnu og hefur verið fulltrúi Íslands á fundum og ráðstefnum erlendis um knattspyrnumál Special Olympics.  

Formlegur samstarfssamningur á milli KSÍ og Special Olympics á Íslandi var undirritaður 13. janúar 2014 og var Ísland eitt af fyrstu aðildarlöndum SOI sem staðfesta slíkt samstarf formlega. KSÍ mun hvetja knattspyrnufélög um land allt til samstarfs á þessu sviði og kynna samstarfið í í tengslum við þjálfaranámskeið barna og unglinga.

Fyrstu knattspyrnusambönd til að hljóta viðurkenningu Special Olympics í Evrópu fyrir samstarf við Special Olympics í heimalandinu voru í Danmörku, Ítalíu og Tyrklandi fyrir árin 2011 – 2012 og nú Ísland, Írland og Hvíta-Rússland fyrir árin 2012 - 2013.  

Samstarfið á Íslandi hefur tengst Evrópuviku UEFA og Special Olympics, Íslandsleikum Special Olympics, sparkvallaverkefni þar sem opnar æfingar voru settar upp fyrir fatlaða og nú síðast samstarfi vegna Unified football / blönduð lið fatlaðra og ófatlaðra

Þetta er mikil viðurkenning fyrir margra ára farsælt samstarf KSÍ og Special Olympics á Íslandi.   .

Mynd/ Guðlaugur Gunnarsson t.v. tekur á móti viðurkenningunni


Til baka