Laugardagur 17. maí 2014 11:53
Íþróttasamband fatlaðra er 35 ára í dag en sambandið var stofnað þann 17. maí árið 1979.
Hlutverk ÍF • Hafa yfirumsjón með þeim íþróttagreinum sem fatlaðir stunda á Íslandi
• annast útbreiðslu- og fræðslustarf varðandi íþróttir fatlaðra
• vera fulltrúi Íslands varðandi erlend samskipti er tengjast íþróttamálum fatlaðra
• gæta hagsmuna allra þeirra fötlunarhópa sem eru innan Í.F. en þeir eru:
Þroskahamlaðir, hreyfihamlaðir, sjónskertir, blindir og heyrnarlausir/skertir.