Mánudagur 19. maí 2014 15:20

Arnar Helgi með fimm ný Íslandsmet í Sviss


Annasöm helgi er að baki hjá Arnari Helga Lárussyni hjólastólakappakstursmanni en hann er nú staddur í Sviss og um helgina setti hann fimm ný Íslandsmet í greininni!

Íslandsmet Arnars í Sviss um helgina:

200m - 34,55 sek
400m - 73,08 sek
800m - 2:39,40 mín
1500m - 4:57,87 mín
5000m - 16:50,81

Arnar er hvergi nærri hættur í Sviss því á miðvikudag keppir hann aftur og þá í 100m, 200m og 800m hjólastólaakstri og næsta laugardag tekur hann þátt í maraþonkeppninni í Sviss.

Hér getið þið fylgst með Arnari á Facebook

Til baka