Fimmtudagur 3. júlí 2014 10:56

Starfsmenn Össurar hlaupa fyrir ÍF í Reykjavíkurmaraþoninu


Hvert ár hlaupa starfsmenn Össurar í Reykjavíkurmaraþoni til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra og verður maraþonið í ár engin undantekning. Með hverjum kílómetra sem hlaupinn er rennur upphæð til styrktar starfsemi ÍF.

Hlaupahópur Össurar er skráður inni á www.hlaupastyrkur.is og þar er hægt að heita á starfsmenn Össurar. Nú til að hvetja ykkur til frekari dáða þá látum við myndbandið hér að neðan tala sínu máli og þökkum strákunum í Kaleo kærlega fyrir að búa til granítharða músík, ekki gleyma að tryggja ykkur eintak.

Vertu með!


Til baka