Miðvikudagur 28. janúar 2009 13:33

Ganga og gaman

Átak, Fjölmennt, Ás styrktarfélag, Íþróttasamband fatlaðra, Hitt húsið, Öspin og Þroskahjálp hafa tekið saman höndum og stofnað gönguhóp. Markmiðið er að hittast einu sinni í mánuði og oftar með hækkandi sól, ganga í 20-30 mín. og fá sér smá hollustu á eftir. Fyrsta gangan var 17. janúar og var vel mætt. Næsta ganga verður Laugardaginn 14. febrúar, mæting að Háaleitisbraut 13, kl. 13:00. Allir velkomnir.

Til baka