Miđvikudagur 6. ágúst 2014 16:48

Jón, Thelma og Kolbrún öll međ Íslandsmet í úrslitum


Ţriđja keppnisdegi á Evrópumeistaramóti fatlađra er nú lokiđ hjá íslenska hópnum. Ţrír af fjórum sundmönnum Íslands tóku ţátt í úrslitum í dag og settu ţeir allir ný Íslandsmet í sínum greinum. Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, reiđ á vađiđ í 50m skriđsundi í flokki S6 en ţar varđ Thlema sjötta á 39,49 sek. sem er bćting á Íslandsmetinu sem hún setti í undanrásum í morgun sem var 40,32 sekúndur.

Nćstur á sviđ var Jón Margeir Sverrisson, Fjölni, í 100m bringusundi S14 karla en Jón hafnađi í 4. sćti á 1:13,81 mín. sem er nýtt Íslandsmet í greininni. Eldra met Jóns var 1:13,91 mín. og ţví bćting upp á 10 sekúndubrot.

Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Fjörđur/SH, hafnađi í sjötta sćti í 100m bringusundi S14 kvenna á tímanum 1:24,14 mín. sem er stórbćting á Íslandsmetinu sem hún setti í undanrásum í morgun en ţá synti Kolbrún á tímanum 1:25,24 mín. Ţá var millitími Kolbrúnar einnig Íslandsmet í 50m bringusundi, 39,23 sek. Spánverjinn Alonso Morales setti nýtt heimsmet í greininni áđan ţegar hún kom í bakkann á 1:15,83 mín.

Á morgun er Thelma Björg ein íslenskra keppenda sem fer í laugina í Eindhoven ţegar hún keppir í 200m fjórsundi S6.

Viđ minnum einnig á myndasafniđ okkar á 123.is/if sem er reglulega uppfćrt en myndirnar ytra tekur Sverrir Gíslason.

Mynd/ Jón Margeir gerir sig kláran fyrir átökin í úrslitum 100m bringusundsins.

Til baka