Fimmtudagur 7. ágúst 2014 16:52

Thelma í 6. sćti međ tvö ný Íslandsmet


Thelma Björg Björnsdóttir hafnađi í dag í 6. sćti í 200m fjórsundi á Evrópumeistaramóti fatlađra sem nú stendur yfir í Eindhoven í Hollandi. Árangurinn lćtur ekki á sér standa hjá Thelmu sem vart dýfir tá í laugina án ţess ađ yfirkeyra gildandi Íslandsmet sín. Í 200m fjórsundinu í dag setti hún tvö ný met!

Thelma kom í bakkann á 3:40,19 mín. sem er nýtt Íslandsmet í greininni og í fyrstu ferđ í 50m flugsundi setti hún einnig nýtt Íslandsmet er hún synti ferđina á 47,69 sek.

Hin breska Ellie Simmonds setti nýtt heimsmet í greininni er hún kom í bakkann á 3:04,07 mín.

Á morgun, föstudaginn 8. ágúst, eru allir íslensku keppendurnir í sviđsljósinu. Kolbrún Alda, Aníta Ósk og Jón Margeir keppa öll í 200m skriđsundi S14 og Thelma keppir í 100m skriđsundi S6.

Mynd/ Sverrir Gíslason - Thelma syndir hér baksundiđ í 200m fjórsundinu í Hollandi í dag.

Til baka