Ţriđjudagur 19. ágúst 2014 18:24

Helgi Evrópumeistari!


Helgi Sveinsson, Ármann, er Evrópumeistari í spjótkasti í flokki F42 en hann var rétt í ţessu ađ hafa sigur í greininni á Evrópumeistaramóti fatlađra sem nú fer fram í Swansea. Lengsta kast Helga reyndist 50,74 metrar og dugđi ţađ til sigurs svo Helgi er nú ríkjandi heims- og Evrópumeistari í greininni.

Kastsería Helga:

50,06 - 46,23 - x - 49,39 - 48,87 og 50,74

Norđmađurinn Runar Steinstad varđ annar međ kast upp á 47,18 metra og Búlgarinn Dechko Ovcharov varđ ţriđji međ kast upp á 43,44 metra.

Heimsmetiđ hjá Kínverjanum Fu Yanlong stendur ţví enn í 52,79 metrum og Evrópumet Danans Jakob Mathiasen lifir ţví enn góđu lífi síđan áriđ 2000 og er 52,74 metrar. Íslandsmet Helga stendur einnig óhaggađ frá ţví fyrr í sumar en ţađ er 51,83 metrar.

Helgi hefur lokiđ keppni á Evrópumeistaramótinu og kemur heim til Íslands vopnađur gullverđlaunum.

Til hamingju Helgi!

Mynd/ Jón Björn: Helgi ásamt Kára Jónssyni landsliđsţjálfara ÍF í frjálsum en ţeir kappar voru eins og gefur ađ skilja kampakátir í Swansea í dag.

Til baka