Fötluðum
börnum og unglingum er nú gefið tækifæri á að vera virkir þátttakendur á æfingum
hjá almennu knattspyrnufélagi. Íþróttasamband fatlaðra er umsjónaraðili
starfsemi Special Olympics á Íslandi. Evrópusamtök Special Olympics og UEFA hafa
byggt upp samstarf á sviði knattspyrnu fyrir fatlaða en óskað var eftir því að
aðildarlönd samtakanna starfi með knattspyrnusamböndum í hverju landi að þessu
verkefni.
Samstarf ÍF og KSÍ hefur tengst Íslandsleikum Special Olympics
og sparkvallaverkefni þar sem boðið er upp á opnar æfingar fyrir fatlaðra.
Markmið samstarfsins er að efla þátttöku fatlaðra í knattspyrnu og stuðla að því
að knattspyrna sé í boði fyrir fatlaða um land allt.
Þriðjudaginn 16. desember
fóru fulltrúar KSÍ og ÍF á fund KR þar sem rætt var samstarf á þessu sviði. Áhugi kom fram hjá KR að standa að
æfingum fyrir fötluð börn og unglinga á árinu 2009.
Mánudaginn
2.febrúar nk. munu hefjast
knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða hjá KR ,markmiðið er að gefa fötluðum
börnum og unglingum tækifæri að vera virkir þátttakendur hjá almennu
knattspyrnufélagi.
Æfingatímar verða eftirfarandi: mánudagar kl. 20:30 fyrir eldri
hóp (13 ára og eldri) og laugardagar kl. 15:30 fyrir yngri hóp (12 ára og
yngri).
Jafnframt
verður reynt að stuðla að því að þeir sem þess óska geti verið á æfingum með
sínum jafnöldrum. Meginmarkmið er að skapa valkost sem gerir fötluðum börnum og
unglingum kleift að vera virkir þátttakendur á æfingum hjá almennu
knattspyrnufélagi og leika undir merkjum KR.
Nánari upplýsingar gefa Rúnar Kristinsson í síma: 5105306, e-mail rkr@kr.is og Stefán Arnarson í síma: 510-5310 og e-mail stefan@kr.is