Fimmtudagur 18. september 2014 13:05

FSÍ óskar eftir sjálfboðaliðum vegna EM


Evrópumeistaramót í hópfimleikum 2014 fer fram í Laugardalshöll dagana 15.-18. október næstkomandi. Fimleikasamband Íslands er að safna saman öflugum hóp sjálfboðaliða sem hefði áhuga á að vinna með skemmtilegum hóp við undirbúning, uppsetningu og framkvæmd mótsins.

Áhugasamir geta sett sig í samband við FSÍ fyrir skráningu í síma 698 2777.

Miðasala er í fullum gangi á Miði.is

Til baka