Mánudagur 29. september 2014 15:43

Íslandsmótið í boccia á Seyðisfirði um helgina

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í einstaklingskeppni í boccia fer fram á Seyðisfirði dagana 2.-4. október næstkomandi. Mótssetning fer fram fimmtudagskvöldið 2. október kl. 20:30 í íþróttahúsinu á Seyðisfirði.

Keppnin sjálf hefst föstudagsmorguninn 3. október kl. 09:00 og lýkur á laugardag. Þegar hefur keppnisdagskráin verði send öllum aðildarfélögum ÍF.

Til baka