Þriðjudagur 9. desember 2014 13:42

Ólafur og Arnar hlutu Hvatningarverðlaun ÖBÍ

Öryrkjabandalag Ísladns veitti Hvatningarverðlaunin sín í áttunda sinn þann 3. desember síðastliðinn á alþjóðadegi fatlaðra. Ólafur Ólafsson formaður Aspar hlaut Hvatningarverðlaun ÖBÍ í flokki einstaklinga fyrir að helga líf sitt íþróttum fatlaðs fólks.

Þá hlaut Arnar Helgi Lárusson Hvatningarverðlaun ÖBÍ í flokki umfjöllunar/kynningar fyrir frumkvæði að átakinu „Aðgengi skiptir máli.“

Háskóli Íslands hlaut svo Hvatningarverðlaun ÖBÍ í flokki fyrirtækja/stofnana fyrir starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun.

Mynd 1: Ólafur Ólafsson hefur gegnt formennsku hjá Ösp allt frá stofnun félagsins eða síðan árið 1980.
Mynd 2: Arnar Helgi Lárusson hefur, fyrir hönd Íslands, keppt á alþjóðlegum stórmótum á borð við HM og EM.


Frétt ÖBÍ um málið


Til baka