Föstudagur 2. janúar 2015 21:59
![](http://www2.ifsport.is/frettamyndir2014/KolbrunAldaEMeindhoven2014.jpg)
Sundfólkið Kolbrún Alda Stefánsdóttir og Hjörtur Már Ingvarsson úr Firði hlutu á dögunum tilnefningu í kjöri á íþróttamanni og íþróttakonu Hafnarfjarðar 2014.
Íþróttakona Hafnarfjarðar reyndist Hrafnhildur Lúthersdóttir sundkona og íþróttakarl Hafnarfjarðar var handknattleiksmaðurinn Sigurbergur Sveinsson. Alls voru átján íþróttamenn tilnefndir í kjörinu sem nánar má lesa um á
heimasíðu ÍBH. Mynd 1: Kolbrún Alda á EM síðastliðið sumar. Mynd 2: Hjörtur Már Ingvarsson.