Miðvikudagur 4. mars 2015 09:37

Sumarbúðir ÍF á Laugarvatni 2015


Opið fyrir umsóknir

Opið er fyrir umsóknir fyrir sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra á Laugarvatni sumarið 2015. Sem fyrr eru tvær vikur í boði, sú fyrri dagana 19.-26. júní og sú seinni dagana 26. júní-3. júlí.

Vinstra megin hér á forsíðu er hnappur með Sumarbúðum ÍF sem hægt er að smella á sem vísar á síðu þar sem hægt er að fylla út umsókn fyrir dvöl í Sumarbúðunum. Umsóknarfrestur er til 15. apríl næstkomandi.

Mynd/ Frá Sumarbúðum ÍF á Laugarvatni sumarið 1998. Alltaf fjör!

Til baka