Laugardagur 28. mars 2015 09:23

Eitt Íslandsmet komið í Glasgow


Sex íslenskir sundmenn úr röðum fatlaðra standa nú í ströngu á Opna breska sundmeistaramótinu sem fram fer í Glasgow í Skotlandi. Þegar hefur fallið eitt nýtt Íslandsmet á mótinu en keppendur frá Íslandi ytra eru eftirfarandi:

Jón Margeir Sverrisson - Fjölnir
Hjörtur Már Ingvarsson - Fjörður
Marinó Ingi Adolfsson - ÍFR
Thelma B. Björnsdóttir - ÍFR
Kolbrún Alda Stefánsdóttir - Fjörður/SH
Aníta Ósk Hrafnsdóttir - Fjörður/Breiðablik

Íslandsmetið sem komið er setti Thelma B. Björnsdóttir í 50m bringusundi í flokki S6 en það var millitími hennar í keppni í 100m bringusundi. Tíminn á nýja Íslandsmetinu var 56,33 sek.

Mynd/ Sverrir - Thelma Björg á ferðinni á opna breska á síðasta ári.

Til baka