Fimmtudagur 16. apríl 2015 17:23

Jón tók heimsmetiđ í 200 skriđ ađ nýju!


Sundmađurinn Jón Margeir Sverrisson er staddur á opna ţýska meistaramótinu í Berlín ţessa stundina en í dag setti hann nýtt heimsmet í 200m skriđsundi í flokki S14 (ţroskahamlađir). Jón og Ástralinn Daniel Fox hafa bitist um heimsmetiđ síđustu ár en Jón varđ fyrstur undir 1.57.00 mín. ţegar hann kom í dag í bakkann á 1.56,94 mín! Stórglćsilegur árangur hjá Fjölnismanninum.

Jón varđ Ólympíumeistari í greininni á Paralympics í London 2012 og setti ţá einnig nýtt heimsmet, Evrópumet, Ólympíumet og Íslandsmet í ţví sundi en sigurtími Jóns í London var 1.59,62 mín. Ţađ er ţví nokkuđ ljóst ađ baráttan er hörđ í greininni og á einungis eftir ađ harđa eftir ţví sem nćr dregur Paralympics í Ríó í Brasilíu 2016!

Helsti keppinautur Jóns, Daniel Fox, var mćttur líka í laugina og varđ ađ láta sér lynda annađ sćtiđ á tímanum 1:57,07 mín. Barátta ţessa tveggja öflugu sundmanna heldur ţví áfram og nćr hámarki í Brasilíu á nćsta ári.

Til hamingju Jón Margeir međ heimsmetiđ!

Ljósmynd/ Sverrir Gíslason - Jón fagnar í Berlín í dag eftir sigurinn í 200m skriđsundi.

Til baka