Föstudagur 8. maí 2015 17:29

The Color Run og Alvogen styðja við réttindi og velferð barna

- Hluti af þátttökugjöldum úr The Color Run renna til góðgerðarmála

- 5 milljónum króna er úthlutað til íslenskra góðgerðarfélaga úr nýjum samfélagssjóði

- Rauði krossinn, UNICEF og Íþróttasamband fatlaðra njóta góðs af hlaupinu

Þrjú íslensk góðgerðarfélög hafa hlotið styrk úr nýjum samfélagssjóði The Color Run og lyfjafyrirtækisins Alvogen sem nýverið var stofnaður til stuðnings réttindum og velferð barna. Fimm milljónum króna verður úthlutað úr sjóðnum og munu Rauði krossinn, UNICEF og Íþróttasamband fatlaðra njóta styrkja að þessu sinni. Öll eiga samtökin það sameiginlegt að vinna að réttindum og velferð barna. Óskað var eftir styrkbeiðnum frá íslenskum góðgerðarfélögum og bárust sjóðnum fjölmargar umsóknir.

Eftirfarandi aðilar njóta góðs af The Color Run sem haldið er í fyrsta sinn á Íslandi þann 6. júní næstkomandi. Hlaupið er fimm kílómetrar og fer fram í miðborg Reykjavíkur þar sem litir og gleði ráða ríkjum.

Íþróttasamband fatlaðra – Styrkur til sambandsins nemur einni milljón króna sem mun meðal annars nýtast við undirbúning og framkvæmd fjölþrautakeppni fatlaðra í samstarfi við frístundaheimili, Nýársmót sambandsins og önnur verkefni sem tengjast fötluðum börnum og unglingum. Alvogen verður einn af samstarfsaðilum sambandsins og mun leggja sérstaka áherslu á verkefni sem tengjast ungum og efnilegum íþróttamönnum með fötlun.

UNICEF
– UNICEF  hlýtur tveggja milljóna króna styrk sem mun nýtast í þágu bágstaddra barna um allan heim. Alvogen hefur verið einn af stærstu styrktaraðilum UNICEF á Íslandi síðastliðin ár og styrkt fjölmörg verkefni á vegum samtakanna. Má þar nefna neyðarhjálp á Sahel-svæðinu og menntun ungra stúlkna á Madagaskar.

Rauði krossinn –The Color Run og Alvogen munu styðja við verkefnið „Vertu næs“ sem ætlað er að vinna gegn fordómum í íslensku samfélagi. Fólk fæðist ekki með fordóma og því er mikilvægt að ná sérstaklega til barna og ungs fólks. Styrkur til Rauða krossins nemur tveimur milljónum króna. Alvogen hefur einnig verið öflugur styrktaraðili Rauða krossins undanfarin ár og styrkti til að mynda rekstur verkmenntaskóla í Sierra Leone um þriggja ára skeið. Nánar um verkefnið á www.vertunaes.is

Samhliða hlaupinu hefur Alvogen efnt til styrktartónleika í Hörpu þann 6. júní þar sem ágóði miðasölu mun renna til neyðarsöfnunar UNICEF og Rauða krossins vegna náttúruhamfaranna í Nepal og skiptis aðgangseyrir óskertur jafnt á milli félaganna. Gert er ráð fyrir að með tónleikunum safnist fimm milljónir króna, til viðbótar við fjórar milljónir króna sem Alvogen hefur nú þegar látið renna til neyðarsöfnunar UNICEF. Fimm milljónir verða greiddar til samtakanna á næstum dögum af Alvogen þannig að væntanleg innkoma tónleikanna nýtist strax við hjálparstarf. UNICEF og Rauði krossinn standa bæði að neyðarsöfnun í Nepal og nálgast má nánari upplýsingar um safnanir á heimasíðum þeirra.

Á myndinni eru:


Aftari röð

Hermann Ottóson, framkvæmdastjóri Rauða krossins

Þórunn Lárusdóttir, verkefnastjóri Vertu næs hjá Rauða krossinum

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland

Gestur Steindórsson, verkefnastjóri The Color Run á Íslandi

Fremri röð

Guðmundur Hákon Hermannsson, formaður ungmennaráðs Íþróttasambands fatlaðra

Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi

Róbert Wessman, forstjóri hjá lyfjafyrirtækinu Alvogen

Til baka