Ţriđjudagur 23. júní 2015 13:48

Landsliđsţjálfarinn ánćgđur međ ört stćkkandi landsliđshóp


Frjálsíţróttafólk ÍF gerđi góđa ferđ til Grosseto á Opna Ítalska meistaramótiđ á dögunum. Helgi Sveinsson, Ármanni sigrađi örugglega í spjótkasti í flokki aflimađra F42 međ ţví ađ kasta 52,61 m sem er nálćgt gamla heimsmetinu (52,79m) sem hann sló um daginn í Laugardalnum međ 54,62 m kasti. Kastsería Helga var (52,61-óg-51,33-óg-óg og 49,16 m) ţar sem ekkert kastanna var tćknilega „vel“ útfćrt. Helgi á ţví greinilega enn mikiđ inni í spjótkastinu.


Arnar Helgi Lárusson, Njarđvík í flokki mćnuskađađra T53, mćtti međ nýsmíđi vetrarins sem hann smíđađi alfariđ sjálfur heima í skúrnum sínum í Njarđvík. Ţađ beit lítiđ á kappann ţó mótvindur vćri 3 metrar á sekúndu í 100 m á laugardagsmorgninum í Grosseto, hann kom í markiđ í 3. sćti á nýju Íslandsmeti 18,25 sek og bćtti gamla metiđ sem var 18,65 sek, sett í Nottwill í Sviss fyrir rúmu ári síđan. Síđar sama dag tók Arnar Helgi ţátt í 400m og bćtti ţađ met svo um munađi. Hann rann skeiđiđ á 66,68 sek og bćtti metiđ úr 73,08 sek, einnig frá Nottwill í fyrra. Arnar Helgi keppti síđan í 200m race á sunnudag og náđi tímanum 35,32 sek í mótvindi -2,6 m/s. Hann var ţví nokkuđ frá sínu besta en má vera sáttur viđ árangur helgarinnar.

Guđrún Hulda Sigurjónsdóttir úr Suđra í flokki F20 bćtti metin sín í kúlu og kringlu. Kúlunni varpađi Hulda 9,85 m og bćtti fyrra met sitt frá í vor úr 9,72 m. Krínglunni sveiflađi Hulda síđan í ţrígang lengra en gildandi met hennar sem var 28,00 m. Fyrst 28,34 m, ţá 28,75 m og síđan 29,78 m í lokakastinu.

Stefanía Daney Guđmundsdóttir úr Eik á Akureyri keppti í flokki 20 ţar sem hún var nú formlega flokkuđ. 100 m hljóp hún á 15,25 sek í -3 m/s mótvindi og náđi ţví ekki ađ bćta besta árangur sinn sem er 14,86 sek frá í vor. Hún ţurfti síđan ađ glíma viđ ađ keppa í tveimur greinum samtímis. Hún stökk langstökk og varđ 5. međ 4,49m (v+2,4), ađeins 14 cm frá sínum besta árangri, og í 400 m hlaupi ţar sem hún var ađeins 5/100 hlutum frá sínu besta á 77,87 sek. Stefanía Daney er ađeins á sautjánda ári og á ţví góđa framtíđ fyrir sér í frjálsum. Má ţar nefna ađ EM er á nćsta ári og baráttan viđ árangursviđmiđ til Ríó er í fullum gangi fram á nćsta ár.

Patrekur Andrés Axelsson úr Ármanni var flokkađur á mótinu í flokk blindra T11. Hann og ađstođarmađur hans Einar Óli Valsson kepptu í 100 m hlaupi en urđu á mistök viđ endalínu sem kostuđu ţá ţátttökuna. Slíkt skrifast á reynsluleysi ţeirra félaga en var óneitanlega svekkjandi fyrir ţá. Einar Óli náđi ekki ađ setja Patrek nćgjanlega vel fram fyrir sig á endalínu og ţví fór sem fór. Mótvindur var mikill í hlaupinu svo ekki var ađ vćnta mikilla afreka hvort sem var. Ţeir kepptu einnig í 200m hlaupi og náđu ţar góđu hlaupi, gerđu engin mistök og fengu tímann 28,65 sek í öđru sćti í sínum riđli. Ţeir félagar eiga einnig framtíđ fyrir sér í frjálsum eftir ađ hafa einungis ćft einn vetur.

Megin markmiđ ÍF međ ţátttökunni í Grosseto var ađ fá alţjóđlega flokkun á Stefaníu Daney og Patrek og gefa ţeim tćkifćri á ađ skyggnast inn í heim afreksíţrótta fatlađra međ ţátttöku í keppninni. Ađrir voru ţarna til ađ reyna sig viđ jafningja og fá árangur sinn skráđan alţjóđlega. Helgi er óneitanlega einn af stóru nöfnunum í heimi fatlađra íţróttamanna sem ađrir líta upp til. Svo eru Hulda og Arnar Helgi á sínu öđru ári í afreksheiminum og farin ađ taka stórstigum framförum. Ţjálfarar og fararstjórn ÍF í frjálsum eru ţví hćst ánćgđ međ árangurinn og hinn stćkkandi landsliđshóp ÍF.

Kári Jónsson
Landsliđsţjálfari ÍF í frjálsum íţróttum

Til baka