Sunnudagur 9. ágúst 2015 21:38

Helgi Sveinsson kastar enn yfir heimsmetiđ!


Helgi Sveinsson spjótkastari úr Ármanni sigrađi í spjótkastkeppni Tyrvingleikanna á Bisletleikvanginum í Ósló í dag. Helgi sem keppir í flokki F42, íţróttamanna međ aflimun fótar ofan viđ hné, kastađi spjótinu yfir gildandi heimsmet kínverjans Fu Yanlong sem er 52,79m frá í London 2012. Í fyrstu tilraun kastađi Helgi 53,60 m og bćtti síđan um betur í sínu síđasta kasti međ 56,04 m. Keppnin í dag var sérstaklega sett upp milli Helga Sveinssonar Heims- og Evrópumeistara og Rúnars Steinstad frá Noregi, bronsverđlaunahafa á ÓM í London, sem hefur veriđ keppinautur Helga síđustu ár. Rúnar kastađi sitt ársbesta í dag 45,12 m og ţriđji var Stephan Hem međ 36,79 m. Helgi og Rúnar verđa keppinautar á HM í Doha 25 október.

Eins og áđur segir er ţetta ţriđja mótiđ sem Helgi kastar spjótinu yfir gildandi heimsmet. En til ađ fá met stađfest ţurfa mót ađ vera viđurkennd af IPC-Athletics og vera á mótaskrá ţess. Fyrri mótin tvö, JJ-mótiđ í Laugardalnum 20. maí ţar sem hann kastađi fyrst yfir heimsmetiđ 54,62 m og síđan í Kaplakrika í Hafnarfirđi 26.maí 57,36m hafa ekki enn veriđ stađfest af IPC-Athletics. Ţađ má ţví telja líklegt ađ ţessi árangur Helga verđi stađfest heimsmet í flokki F42, a.m.k. ţar til svar hefur borist um mótiđ í Kaplakrika.

Helgi er nú međ besta árangur á heimslista IPC í flokki F42 á undan Rúnari Steinstad. Helgi er einnig međ betri árangur en ţeir sem keppa í flokknum fyrir ofan F43-44, en ţeir eru aflimađir neđan hnés. Á Paralympics í Ríó á nćsta ári mun Helgi keppa í sameinuđum flokki 42-44 í spjótkastinu.

Mynd/ Helgi Sveinsson ásamt Runar Steinsted t.v. og Stephen Hem eftir ađ hafa sigrađ međ 56,04m á Bislet leikvanginum 9. ágúst 2015.

Til baka