Þriðjudagur 11. ágúst 2015 09:52

Þú getur hlaupið til styrkar ÍF í Reykjavíkurmaraþoninu

Í ár sem fyrri ár geta þeir sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu safnað áheitum fyrir Íþróttasamband fatlaðra. Síðu ÍF á hlaupastyrkur.is má nálgast hér.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2015 fer fram laugardaginn 22.ágúst. Skráning í hlaupið verður opin á marathon.is til kl.13:00 fimmtudaginn 20.ágúst. Þátttakendur geta valið á milli sex vegalengda sem henta fyrir alla aldurshópa og fjölbreytt getustig.

Til baka