Mánudagur 19. október 2015 17:42

HM fararnir komnir áleiđis til Doha


Heimsmeistaramót fatlađra í frjálsum íţróttum fer fram í Doha í Katar dagana 21.-31. október nćstkomandi. Ísland á tvo fulltrúa á mótinu en ţađ eru ţeir Helgi Sveinsson, Ármann, og Arnar Helgi Lárusson, UMFN. Íslenski hópurinn hélt utan í morgun en međ ţeim Arnari og Helga í för er landsliđsţjálfarinn Kári Jónsson og honum til ađstođar er Ásmundur Jónsson, nuddari. Kapparnir verđa komnir á endastöđ í nótt og svo hefst fjöriđ innan tíđar.

Allt mótiđ verđur í beinni útsendingu á netinu en nálgast má útsendingarnar hér.

Arnar Helgi keppir í hjólastólakappakstri í flokki T53 - dagskrá Arnars á mótinu:

22. október, 100m race

25. október, 200m race

27. október, 400m race

Helgi keppir í spjótkasti en hann er ríkjandi heims- og Evrópumeistari í greininni í flokki F42. Ađ ţessu sinni munu F42,43 og 44 keppa saman í Doha og verđur fróđlegt ađ fylgjast međ gengi Helga en hann er í raun ađ keppa upp fyrir sig viđ einstaklinga í flokkum sem teljast vera međ minni aflimanir en Helgi er aflimađur viđ hné á öđrum fćti.

30. október, spjótkast

Gert er ráđ fyrir ađ um 1300 íţróttamenn frá 90 löndum taki ţátt í mótinu en ţađ er til mikils ađ vinna ţví ţeir sem komast á verđlaunapall tryggja landi sínu ţátttökusćti á Paralympics í Ríó á nćsta ári.

Mynd/ Stefán Ţór Borgţórsson - hópurinn í lok síđustu viku á blađamannafundi ÍF fyrir verkefniđ í Doha.

Til baka