Ţriđjudagur 27. október 2015 13:35

Arnar Helgi lauk keppni í Doha međ nýju Íslandsmeti

Arnar Helgi Lárusson hefur nú lokiđ keppni á heimsmeistaramóti fatlađra í frjálsum en í morgun keppti hann í 400m hjólastólakappakstri. Arnar Helgi setti nýtt Íslandsmet í greininni ţegar hann kom í mark 1.05.77 mín.

Ríkjandi Íslandsmet Arnars í greininni fyrir keppnina í Doha var 1.06.68 mín. Af ţessu er ljóst ađ Arnar náđi ekki ađ tryggja sér ţátttökurétt í Ríó međ ţátttöku sinni í HM en ţađ er fjarri ţví öll von úti enn og ljóst ađ ţađ verđur nóg ađ gera hjá Arnari nćstu mánuđi viđ ađ berjast fyrir ţátttökunni á Paralympics.

Riđlarnir í morgun voru ţrír í keppni Arnars en síđasti tíminn inn í úrslit var 53,48 sek.

Ísland lýkur ţátttöku sinni í mótinu á fimmtudag ţegar Helgi Sveinsson keppir í spjótkasti. Helgi mun ţá keppa í ţriggja flokka keppni ţar sem F42,43 og 44 hafa veriđ settir saman í eina keppni og ţannig verđur fyrirkomulaginu háttađ á Paralympics í Ríó.

Mynd/ Stefán Ţór Borgţórsson - Arnar Helgi Lárusson, UMFN, hefur lokiđ ţátttöku í Doha.

Til baka