Föstudagur 4. desember 2015 15:24

Helgi og Thelma íţróttafólk ársins 2015


Frjálsíţróttamađurinn Helgi Sveinsson, Ármanni, og sundkonan Thelma B. Björnsdóttir, ÍFR, voru í dag útnefnd íţróttamađur og íţróttakona ársins 2015 úr röđum fatlađra. Kjörinu var lýst á Radisson Blu Hóteli Sögu. Ţá hlaut Guđmundur Sigurđsson rannsóknarlögreglumađur Hvataverđlaunin 2015.

ÍŢRÓTTAKONA ÁRSINS 2015: THELMA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, ÍFR


Nafn:
Thelma Björg Björnsdóttir

Félag: ÍFR 

Íţrótt: Sund

Flokkur: S6-SB5 (hreyfihamlađir)

Íţróttakona ársins: 2013,2014,2015.

Stađa á heimslista S6: 50 skriđ 21/66 – 100 skriđ 15/59 – 400 skriđ 10/37 - 50 bak 9/14 – 100 bak 28/53 – 100 bringa 12/38



Thelma Björg er nemi viđ Fjölbrautaskólann í Breiđholti og stundar sund međ Íţróttafélagi fatlađra í Reykjavík. Ţjálfari hennar í dag er Tomas Hajek en ţjálfarar Thelmu frá upphafi eru Halldór Sćvar Guđbergsson, Eva Ţórdís Ebenezersdóttir, Erlingur Ţ. Jóhannsson og áđurnefndur Tomas Hajek. Á árinu 2015 setti Thelma alls 30 Íslandsmet, varđ Norđurlandameistari í 400m skriđsundi og hafnađi í 5. sćti á heimsmeistaramótinu í Glasgow í 100m bringusundi. Thelma gat ekki veriđ viđstödd athöfnina í dag ţar sem hún berst fyrir lágmörkum á Paralympics og er af ţeim sökum stödd viđ keppni í Póllandi.
Thelma er ađeins önnur konan í sögunni til ţess ađ vera útnefnd íţróttakona ársins ţrisvar sinnum eđa oftar. Hin er Kristín Rós Hákonardóttir sem hlaut nafnbótina alls 12 sinnum ţegar hún vann 12 ár í röđ!  

ÍŢRÓTTAMAĐUR ÁRSINS 2015: HELGI SVEINSSON, ÁRMANN


Nafn: Helgi Sveinsson

Félag: Ármann

Íţrótt: Frjálsar íţróttir

Flokkur: F42

Íţróttamađur ársins: 2013,2015

Stađa á heimslista F42: 1

Helgi Sveinsson er starfsmađur hjá Össur hf. og frjálsíţróttamađur hjá Ármanni. Ţjálfari hans í dag er Kári Jónsson en ţjálfarar frá upphafi eru áđurnefndur Kári, Guđmundur Hólmar Jónsson og Einar Vilhjálmsson. Helgi var ungur og efnilegur handknattleiksmađur en aflima ţurfti vinstri fót ofan viđ hné á unglingsárum. 
Helgi tók ţátt í sínu fyrsta stórmóti sumariđ 2012 á Evrópumeistaramótinu í Hollandi og náđi ţar  öđru sćti, hann er í dag Evrópumeistari frá 2014 í Swansea, heimsmethafi og heimsmeistaramótsmetshafi í spjótkasti F42. 
Helgi vann til bronsverđlauna á árinu á HM í frjálsum sem fram fór í Doha í Katar ţar sem keppt var í sameinuđum flokki F42, 43, og 44 en  ţannig verđur málum háttađ á Paralympics í Ríó De Janeiro 2016. 
Helgi kastađi yfir heimsmet kínverjans Fu Yanlong í greininni 52,79m á fjórum mótum á árinu, 54,62m á JJ-móti Ármanns, 57,36 á kastmóti FH, 56,04m á Bislet í Osló og 55,18m á HM í Doha ţar sem hann setti heimsmeistaramótsmet í flokki F42. Helgi á lengsta kast ársins í flokkunum ţremur, 57,36m.

Hvataverđlaunin 2015

Hvataverđlaun ÍF eru veitt einstaklingum, félagasamtökum, stofnun, fyrirtćki eđa öđrum ađilum sem á framsćkinn hátt hafa unniđ í ţágu íţróttastarfs fatlađra á árinu.

Rannsóknarlögreglumađurinn Guđmundur Sigurđsson hlaut Hvataverđlaunin í ár fyrir LETR verkefniđ. LETR eđa Law Enfoercement Torch Run er alţjóđlegt verkefni sem byggir á samstarfi Special Olympics og lögreglumanna. Guđmundur tók ađ sér ađ stýra innleiđingu LETR á Íslandi og virkjađ lögreglumenn- og konur til ţátttöku í kyndilhlaupum fyrir Íslandsleika Special Olympics. Guđmundur tók m.a. ţátt í LETR hlaupinu fyrir heimsleika Special Olympics í Los Angeles síđastliđiđ sumar.

Mynd/ Frá vinstri: Emil Steinar Björnsson bróđir Thelmu tók viđ verđlaunum systur sinnar sem stödd er í Póllandi viđ keppni. Fyrir miđju er Guđmudnur Sigurđsson rannsóknarlögreglumađur og til hćgri er Helgi Sveinsson íţróttamađur ársins.

Til baka