Laugardagur 23. janúar 2016 15:36

Hjörtur með nýtt Íslandsmet á RIG

Reykjavík International Games standa nú yfir og þegar er hafin keppni í sundi. Sundhluti fatlaðra á mótinu fór fram í dag í Laugardalslaug þar sem féll eitt nýtt Íslandsmet en það átti Fjarðarliðinn og Þorlákshafnarjakinn Hjörtur Már Ingvarsson.

Íslandsmet á RIG - sundhluti fatlaðra:


Hjörtur Már Ingvarsson, Íþróttafélagið Fjörður
100m baksund - flokkur S6: 1:46.04 mín.

Úrslit RIG 2016

Myndir/ Á efstu mynd er Hjörtur Már með bolinn sem hann hlaut að launum fyrir Íslandsmetið sitt en á neðri myndunum eru þær Helga Steinunn Guðmundsdóttir varaforseti ÍSÍ og Ingigerður Einarsdóttir markaðsstjóri Avis á Íslandi en þær afhentu verðlaun við mótið í dag og þeim innan handar var Hólmfríður Eyja Jónsdóttir sérlegur verðlaunavörður.






Til baka