Ţriđjudagur 2. febrúar 2016 15:04

EM í sundi 30. apríl - 7. maí


Dagana 30. apríl til 7. maí n.k. fer Evrópumeistaramót fatlađra í sundi fram á eyjunni Madeira sem tilheyrir Portúgal. Áćtlađ er ađ um 450 keppendur frá 50 löndum taki ţátt í mótinu sem er eitt stćrsta sundmót fatlađra fyrir Paralympics/Ólympíumót fatlađra sem fram fer í Ríó í Brasilíu í septembermánuđi n.k. Á mótinu keppa allir bestu sundmenn Evrópu og mótiđ ţví gríđarlega sterkt og ţar keppa menn ekki ađeins ađ ţví ađ vinna til verđlauna heldur líka ađ ţví ađ ná tilskyldum lágmörkum fyrir Ríó 2016.
 
Á EM í Portúgal taka ţátt fyrir Íslands hönd ţeir einstaklingar sem hafa nú ţegar náđ lágmörkum fyrir Paralympics í Ríó en ţeir eru Jón Margeir Sverrisson, Fjölni, Sonja Sigurđardóttir, ÍFR og Thelma Björg Björnsdóttir ÍFR. Ţá mun Már Gunnarsson, Íţróttafélaginu Nes verđa međal ţátttakenda og gengst ţar undir alţjóđlega flokkun.

Enn er möguleiki til ađ ná lágmörkum vegna Ríó og ţar međ ađ öđlast ţátttökurétt á Evrópumeistaramótinu ţar eđ Íslandsmót ÍF, sem fram fer í Reykjanesbć 11. – 13. mars n.k., er međ IPC leyfi og ţeir tímar sem ţar nást ţví löglegir lágmarkatímar fyrir EM.
 
Um miđjan febrúar n.k. mun sundnefnd IPC – Alţjóđaólympíuhreyfingar fatlađra kynna ţjóđum ţann „kvóta“ sem ţeim hefur veriđ úthlutađ en alls munu 620 sundmenn keppa í Ríó, 280 konur og 340 karlar. Til upplýsinga ţá ávinna ţjóđir sér „kvóta“ út frá árangri sundmanna sinna ţar sem verđlaun á stórmótum og stađa á heimslista skiptir mestu máli. Ţađ er ţví ljóst ađ mun fleiri sundmenn munu ná tilskyldum lágmörkum en „kvóti“ landanna segir til um.

Lágmörk í sundi vegna Paralympics í Río de Janeiro (bls 90 í pdf skjali)

Heimasíđa EM í sundi

Til baka