Föstudagur 15. apríl 2016 16:11

Ísland sendir fjóra keppendur á EM í frjálsum


Evrópumeistaramót fatlađra í frjálsum íţróttum fer fram í Grosseto á Ítalíu dagana 10.-16. júní nćstkomandi. Ísland sendir fjóra keppendur á mótiđ en ţeir eru:
 
Helgi Sveinsson – Ármann - flokkur F42
Arnar Helgi Lárusson – UMFN - flokkur T53
Stefanía Daney Guđmundsdóttir – Eik - flokkur F/T 20
Hulda Sigurjónsdóttir – Suđri - flokkur F 20


Helgi Sveinsson er ríkjandi Evrópumeistari í spjótkasti frá Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Swansea sumariđ 2014 og núverandi bronsverđlaunahafi frá HM sem fram fór í Doha í Katar seint á árinu 2015. Helgi hefur stimplađ sig rćkilega inn sem einn af allra fremstu spjótkösturum heims í röđum fatlađra međ sjötta lengsta heimsmet sögunnar!

Ríkjandi heimsmet Helga í greininni er 57,36 metrar en lengast kast sögunnar í spjótkasti fatlađra á Króatinn Branimir Budetic međ kast upp á 65,72 metra en sá keppir í flokki sjónskertra F 13.

Arnar Helgi Lárusson er eini hjólastólakappakstursmađur landsins og hefur veriđ iđinn viđ kolann frá árinu 2012 en sumariđ 2014 vann hann til bronsverđlauna í 200m keppni á Evrópumeistaramótinu í Swansea. Ţađ eru einu verđlaun Arnars á stórmóti og ţykir gríđarlegur árangur í ljósi stutts ferils Arnars í íţróttinni.

Stefanía Daney Guđmundsdóttir og Hulda Sigurjónsdóttir keppa báđar í flokki ţroskahamlađra kvenna, Hulda er margfaldur Íslandsmethafi í kúluvarpi F20 kvenna en Stefanía á bćđi Íslandsmetin í 400m hlaupi og langstökki F20 kvenna.

EM í Grosseto verđur síđasta stórmótiđ sem íslensku keppendunum stendur til bođa áđur en haldiđ verđur til Río de Janeiro í Brasilíu í septembermánuđi ţessa árs ţar sem Paralympics fara fram. Senn styttist í ađ Ríó hópurinn verđur kynntur til leiks og verđur fróđlegt ađ sjá hvađa einstaklingar verđi fulltrúar Íslands í Ríó ţegar Paralympics munu fara ţar fram í fyrsta sinn í sögunni!

Mynd/ Helgi Sveinsson er efsti mađur á heimslista í spjótkasti F42.

Til baka