Miðvikudagur 8. apríl 2009 15:06

KR umsjónaraðili Íslandsleika SO í knattspyrnu 24. maí 2009

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða haldnir í Reykjavík, sunnudaginn 24. maí 2009. KR verður umsjónaraðili leikanna í samvinnu við ÍF og KSÍ og fer keppni fram á íþróttasvæði KR. Stefnt er að keppni fari fram utanhúss en ef veður verður slæmt er gert ráð fyrir möguleika á innanhússkeppni.

Nánari tímasetning og skráningarblöð send út síðar. 
Vinsamlega staðfestið ef sérstakar óskir eru varðandi tímasetningu keppni m.t.t. flugáætlunar/ferðatilhögunar.

Nánari upplýsingar gefur Guðlaugur K. Gunnarsson, KSÍ
Móta og landsliðsmál KSÍ.
Sími: 510 2902
GSM: 661 8183
Fax: 568 9793

Til baka