Stefna stjórnmálaflokkanna í velferðarmálum, áherslur og forgangsröðun á Grand hótel, Reykjavík, Sigtúni 38, miðvikudaginn 15. apríl kl. 20.00-22.00.
Sjötti og síðasti fundurinn í fundaröðinni "Verjum velferðina" sem haldinn er af Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp í aðdraganda Alþingiskosninga 2009.
Forsvarsmenn þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram á landsvísu í Alþingiskosningunum þann 25. apríl svara spurningunni: Hvernig ætlar þinn flokkur að verja velferðina?
Frummælendur á fundinum verða:
*Jóhanna Sigurðardóttir,
forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar.
*Ögmundur Jónasson,
heilbrigðisráðherra og þingmaður Vinstri
grænna.
*Bjarni Benediktsson,
alþingismaður og formaður Sjálfstæðisflokksins.
*Guðjón Arnar Kristinsson,
alþingismaður og formaður
Frjálslyndaflokksins.
*Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Pallborðsumræður að loknum framsögum.
Þátttakendur í pallborði verða
frummælendur ásamt forsvarsmönnum ÖBÍ og Landssamtakanna Þroskahjálpar
Fundurinn er öllum opinn!
Táknmálstúlkar verða á staðnum og
tónmöskvakerfi.
Mynd: Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og
formaður Samfylkingarinnar verður á mælendaskrá annað
kvöld.