Fimmtudagur 16. apríl 2009 09:51

Sambandsþing ÍF 2009

Þann 16. maí næstkomandi fer Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra fram að Radisson SAS Hóteli Sögu. Þegar hafa kjörbréf verið send til héraðssambanda og íþróttabandalaga og eru aðildarfélög ÍF beðin um að hafa samband við sín héraðssambönd og íþróttabandalög vegna þessa.

Gróf drög að dagskrá þingsins eru eftirfarandi:

Föstudagur 15. maí:
19:30: Afhending þinggagna
20:00-21:00: Kynningar og fyrirspurnir

Laugardagur 16. maí:
09:30-17:00: Sambandsþing ÍF-dagskrá skv. hefð
17:00-18:00: Þingslit

Við minnum á að skiladagur á málefnum inn á þing er í dag, fimmtudaginn 16. apríl! Gögn skilist á if@isisport.is

Sunnudaginn 17. maí er svo 30 ára afmælisdagur ÍF þar sem boðið verður til afmælisfagnaðar í Krika við Elliðavatn.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu ÍF í síma 514 4080 eða á if@isisport.is

Til baka