Mánudagur 4. maí 2009 15:22

Ganga og gaman í vor

Þá er búið að ákveða göngur í vor hjá ,,Ganga og gaman hópnum.“

Allar göngurnar eru á laugardögum kl. 13.00 frá Bjarkarási í Stjörnugróf. Gangan
er búin kl. 14.00.

9.  maí er næsta ganga en þá verður gengið svolítið lengra og ekki hafðar neinar veitingar á eftir þannig að hafið með ykkur vatn í brúsa.

Síðasta gangan verður 23. maí, þá verður sest niður eftir gönguna og rætt um hvernig við ætlum að halda áfram að hreyfa okkur í sumar og  hvort við byrjum ekki aftur með gönguhópinn í haust.

Við hvetjum alla til að koma með í þær göngur sem eftir eru. Bjóðið  líka foreldrum ykkar, vinum, starfsfólki og öðrum með í gönguna. Því  fleiri því skemmtilegra.

Til baka