Mánudagur 11. maí 2009 11:57

Íslandsleikar SO í knattspyrnu sunnudaginn 24. maí

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða haldnir í Reykjavík, sunnudaginn 24. maí 2009. KR verður umsjónaraðili leikanna í samvinnu við ÍF og KSÍ.

Keppni hefst kl. 13.00 á íþróttasvæði KR. Yfirleitt tekur keppni 2 tíma en það fer eftir þátttöku.

Stefnt er að keppni fari fram utanhúss en ef veður verður slæmt er gert ráð fyrir möguleika á innanhússkeppni. Keppt verður eins og áður í tveimur flokkum, getumeiri og getuminni.

Skila þarf skráningum á if@isisport.is fyrir þriðjudaginn 19. maí.

Skráningarblað

Til baka