Rétt í þessu var tilkynnt um nýja stjórn Íþróttasambands fatlaðra á 14. Sambandsþingi ÍF sem fer fram á Radisson SAS hóteli Sögu. Fyrir þingið var vitað að þeir Kristján Svanbergsson gjaldkeri ÍF og Erlingur Þ. Jóhannsson myndu ekki gefa áframhaldandi kost á sér í stjórnarsetu. Er þeim þakkað kærlega fyrir mikil og ómetanleg störf í þágu sambandsins í gegnum tíðina.
Tillaga uppstillingarnefndar var svohljóðandi;
Sveinn Áki
Lúðvíksson, áfram formaður ÍF,
Camillu Th. Hallgrímsson, áfram varaformaður
ÍF
og meðstjórnendur;
Jóhann Arnarson, færist upp í aðalstjórn, var áður
í varastjórn ÍF
Þórður Árni Hjaltested, áfram stjórnarmaður
ÍF
Ólafur Þór Jónsson. áfram stjórnarmaður ÍF.
Í varastjórn lagði
uppstillingarnefnd til eftirfarandi einstaklinga:
Svava Árnadóttir, áfram í
varastjórn,
Gunnar Reynir Steingrímsson, nýr í varastjórn,
Jón Heiðar
Jónsson, nýr í varastjórn.
Formaður uppstillingarnefndar sagði frá því að eitt framboð til viðbótar
hefði borist. Það var framboð Arnórs Péturssonar í stöðu varaformanns.
Kosning fór fram um embætti varaformanns þar sem Camilla Th. Hallgrímsson
hafði sigur úr býtum með 32 atkvæðum gegn 14.
Nýja stjórn ÍF kjörtímabilið 2009-2011 skipa:
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður
Camilla Th. Hallgrímsson,
varaformaður.
Þórður Árni Hjaltested
Ólafur Þ. Jónsson
Jóhann
Arnarson
Varastjórn
Svava Árnadóttir
Jón Heiðar Jónsson
Gunnar Einar Steingrímsson
Myndir: Á efri myndinni sést fjöldi þinggesta á Radisson SAS Hóteli Sögu í dag og á þeirri neðri eru nýkjörnir meðlimir í varastjórn ÍF, þeir Gunnar Einar Steingrímsson t.v. og Jón Heiðar Jónsson t.h.