Sunnudagur 18. október 2009 01:37

EM sett međ glćsibrag í Laugardal

Setningarathöfn Evrópumeistaramóts fatlađra í sundi tókst međ miklum myndarbrag í innilauginni í Laugardal í kvöld. Keppni á mótinu hefst svo í fyrramáliđ kl. 09:00 međ undanrásum og úrslit hefjast svo kl. 17:00.

Trođfullt var í innilauginni ţar sem Regína Ósk tók m.a. lagiđ, trúđar skemmtu gestum og Brassbandiđ lék ljúfa tóna fyrir athafnargesti ásamt mörgum öđrum mögnuđum sýningaratriđum. Ađ athöfn lokinni héldu keppendur, ţjálfarar og fleiri í Laugardalshöll en ţar er matsalur mótsins stađsettur og mikiđ verđur ţar um ađ vera á matmálstímum nćstu vikuna enda nćrri 700 manns skráđir til leiks.

Sundmennirnir Hrafnkell Björnsson og Jón Margeir Sverrisson voru fulltrúar Íslands í innmarseringu setningarathafnarinnar og uppskáru mikiđ og gott lófatak áhorfenda ţegar ţeir gengu inn í salinn međ íslenska fánann.

Á morgun, eins og fyrr greinir, hefst keppnin og á međal keppenda eru tveir íslenskir sundmenn, ţau Sonja Sigurđardóttir og Hjörtur Már Ingvarsson. Hjörtur keppir í undanrásum í fyrramáliđ um kl. 09.40 í 50m. skriđsundi og ţar strax á eftir, í nćstu grein keppir Sonja Sigurđardóttir, líka í 50m. skriđsundi.

Sjá ráslistana fyrir keppnisdag 1

Myndir: Sölvi Logason: Frá setningarathöfninni í Laugardalslaug í kvöld.

Til baka