Mánudagur 19. október 2009 22:03

Metaregn í Laugardal

Sannkallađ metaregn var í innilauginni í Laugardal í kvöld ţegar annar keppnisdagurinn á Evrópumeistaramóti fatlađra í sundi fór fram. Alls voru ţađ 10 heimsmet sem féllu og 14 Evrópumet!

Enginn íslensku keppendanna synti í dag en sex ţeirra synda á morgun en ţađ eru ţau Eyţór Ţrastarson, Sonja Sigurđardóttir, Pálmi Guđlaugsson, Skúli Steinar Pétursson, Aníta Ósk Hrafnsdóttir og Ragnar Ingi Magnússon.

Ţess má geta ađ á međal keppenda sem settu met í kvöld var ţýska sundkonan Kirsten Bruhn en hún setti Evrópumet í 400m. skriđsundi í flokki S7 er hún synti á tímanum 5:24,91. Bruhn ţessi stóđ lengi í skugganum af einum albesta sundmanni Íslands, Kristínu Rós Hákonardóttur, sem einnig keppti í flokki S7. Bruhn tók viđ keflinu ţar sem Kristín Rós skildi viđ ţađ er hún lagđi afrekssundmennskuna á hilluna. Kristín Rós Hákonardóttir hefur ţó ekki sagt sitt síđasta í sundi ţví hún er verndari Evrópumeistaramótsins.

Greinar íslensku keppendanna á morgun:

Eyţór 400 skriđ
Pálmi 50 skriđ
Sonja 50 bak
Skúli Steinar 100 bak
Ragnar Ingi 100 bak
Aníta 100 bak

Ţađ verđur Pálmi Guđlaugsson sem ríđur á vađiđ í fyrramáliđ en hann keppir í annarri grein í undanrásum sem hefjast kl. 09:00. Sjá ráslista morgundagsins.

Mynd/Sölvi Logason: Frá EM í Laugardal.

Til baka