Fimmtudagur 22. október 2009 12:11

Tveir í úrslit: Íslandsmet hjá Pálma

Undanrásum á fimmta keppnisdegi var rétt í ţessu ađ ljúka ţar sem tveir íslenskir sundmenn tryggđu sér sćti í úrslitum í kvöld. Ţeir Jón Margeir Sverrisson og Adrian Óskar Sindelka Erwin komust í úrslit í 200m. fjórsundi í flokki S14 (ţroskahamlađra). Báđir bćttu ţeir tímana sína í sundinu og Jón Margeir fór á kostum er hann bćtti tímann sinn um 9 sekúndur!

Anna Kristín Jensdóttir var fyrst íslensku keppendanna í lauginni í dag er hún synti í 100m. bringusundi í flokki SB5 (B fyrir bringusund). Anna komst ekki í úrslit ţar sem hún synti á tímanum 2.31,31 en hún var skráđ inn á mótiđ á tímanum 2.29,86.

Guđmundur Hermannsson hélt uppteknum hćtti er hann synti á 32,46 sek. í 50m. skriđsundi í flokki S9 en Guđmundur var skráđur inn á mótiđ á tímanum 35,24 sek. Frábćr frammistađa hjá Guđmundi sem hefur bćtt tímana sína verulega á mótinu en ţrátt fyrir ţessa vösku framgöngu tókst honum ekki ađ tryggja sér sćti í úrslitum.

Ísafjarđarmćrin Ragney Líf Stefánsdóttir var ţriđja í röđinni er hún keppti í 50m. skriđsundi í flokki S9. Ragney komst ekki í úrslit ţrátt fyrir ađ hafa bćtt tímann sinn en hún synti á 34,91 sek. og bćtti sig um tćpar tvćr sekúndur ţar sem hún fór inn á mótiđ međ tímann 36,09 sek. Íslandsmetiđ í greininni á Lilja María Snorradóttir en metiđ í flokknum hefur stađiđ frá árinu 1992 ţar sem Lilja María setti metiđ á Ólympíumóti fatlađra í Barcelona.

Félagarnir Jón Margeir Sverrisson og Adrian Óskar Sindelka Erwin kepptu svo saman í undanrásum í 200m. fjórsundi í flokki S14. Jón Margeir var í ham og bćtti tímann sinn um 9 sekúndur er hann synti á tímanum 2.36,04 mín en hann fór á mótiđ međ tímann 2.45,74 mín. Arian Óskar var skráđur til leiks á tímanum 3.00,86 en synti á tímanum 2.59,33 mín. Jón Margeir á fjórđa besta tímann inn í úrslit en Adrian á sjöunda besta tímann en ef íslensku piltarnir hafa hug á ţví ađ komast á pall verđa ţeir ađ bretta upp ermar ţar sem ţrír bestu tímarnir eru um 10 sekúndum betri en tími Jóns Margeirs.

Aníta Ósk Hrafnsdóttir synti einnig í 200m. fjórsundi í flokki S14 en komst ekki í úrslit ţrátt fyrir ađ hafa synt á sínum besta tíma, 3.28,59 mín.

Pálmi Guđlaugsson setti nýtt Íslandsmet í 100m. skriđsundi í flokki S6 er hann synti á tímanum 1.24,54 og ţar međ bćtti hann sitt eigiđ Íslandsmet sem var 1.24,72 mín. en ţađ met setti hann í febrúar á ţessu ári. Ţrátt fyrir Íslandsmetiđ komst Pálmi ekki í úrslit.

Ţess má síđan geta ađ Evrópumeistaramótiđ verđur í beinni útsendingu hjá RÚV kl. 17:00-18:00 í dag.

Myndir/Stefán Ţór Borgţórsson: Jón Margeir bćtti sig verulega en hann er hér á efri myndinni en á ţeirri neđri er Ísafjarđarmćrin Ragney Líf Stefánsdóttir.

Til baka