Föstudagur 23. október 2009 19:49

Íslandsmet hjá Pálma og Hirti

Tvö Íslandsmet féllu í kvöld ţegar sjötti og nćstsíđasti keppnisdagur Evrópumeistaramóts fatlađra í sundi fór fram. Ţrekmenniđ úr Ţorlákshöfn, Hjörtur Már Ingvarsson, rúllađi upp gamla Íslandsmetinu sínu í 100m. skriđsundi er hann bćtti ţađ um 10 sekúndur. Pálmi Guđlaugsson var líka í stuđi er hann bćtti sitt eigiđ Íslandsmet í 50m. flugsundi.

Eyţór Ţrastarson gerir nú harđa atlögu ađ langflestum Íslandsmetum Birkis Rúnar Gunnarssonar en í kvöld var Eyţór í fyrsta sundi ţar sem hann synti á 1.18,94 mín. í 100m. baksundi. Tíminn dugđi Eyţóri í 7. sćti en Birkir Rúnar heldur enn í Íslandsmetiđ sem er 1.17,53 mín. Eyţór er ţó byrjađur ađ hrifsa metin af Birki en á dögunum sló Eyţór Íslandsmetiđ í 50m. skriđsundi en ţá hafđi met Birkis stađiđ í 13 ár! Eyţór var skráđur á EM í baksundiđ međ tímann 1.20,94 mín. og bćtti sig ţví töluvert í dag en hann á ţó eitt sund eftir sem er á morgun ţegar hann syndir í 100m. skriđsundi.

Nćstur á sviđ var Hjörtur Már Ingvarsson, sem verđur 14 ára gamall á morgun, en Hjörtur fór gersamlega hamförum og bćtti sitt eigiđ Íslandsmet um heilar 10 sekúndur! Gamla met Hjartar í 100m. skriđsundi í flokki S5 var 1.58,57 mín. en Hjörtur kom í bakkann í kvöld á tímanum 1.48,42 mín. og hefur Ţorlákshafnarbúinn ţrekmikli svo sannarlega sýnt á mótinu ađ hann ćtli sér mikla hluti í framtíđinni. Ţrátt fyrir bćtinguna hafnađi Hjörtur í 8. sćti úrslitanna en getur vel viđ unađ og verđur forvitnilegt ađ fylgjast međ kappanum í 200m. skriđsundi á morgun.

Sonja Sigurđardóttir var nćst á pall í 100m. skriđsundi í flokki S5 og synti hún á tímanum 2.08,97 sem var 0,2 sekúndum lakari tími en skráningartími hennar á mótiđ. Ţar međ hefur Sonja lokiđ keppni á EM ađ ţessu sinni.

Hiđ nćstum ţví ómögulega gerđist í kvöld ţegar félagarnir Jón Margeir Sverrisson og Ragnar Ingi Magnússon kepptu í 100m. skriđsundi í flokki S14. Jón Margeir hafnađi í 5. sćti og synti á nákvćmlega sama tíma og hann gerđi í morgun í undarásum, 1.00,83 mín. Stćrđfrćđilegar líkur á ţessum tíma hjá Jóni eru hverfandi og of flóknar fyrir greinarhöfund til ađ reikna en flestir geta sammćlst um ađ synda upp á sekúndubrot í undanrásum og úrslitum sé afar ólíklegt.

Ragnar Ingi synti á tímanum 1.06,38 mín. sem er nćstum ţví tveimur sekúndum lakari tími en hann synti á í undanrásum í morgun. Ađ svo búnu hafa allir fimm sundmennirnir frá Íslandi í flokki S14 lokiđ keppni á mótinu og hafa ţeir allir stađiđ sig međ mikilli prýđi. Ţćr Anna Kristín Jensdóttir og Ragney Líf Stefánsdóttir hafa einnig lokiđ keppni en á morgun mun Hrafnkell Björnsson synda í sinni einu grein á mótinu sem verđur 4x100m. bođsund (skriđ).

Hjörtur Már var ekki einn um ađ setja Íslandsmet í kvöld ţví slíkt hiđ sama gerđi Pálmi Guđlaugsson í flokki S6 er hann synti á tímanum 43,72 sek. í 50m. flugsundi. Pálmi komst naumlega inn í úrslitin á tímanum 44,95 sek. ţar sem hann hafđi betur gegn Antum Brazak frá Króatíu sem synti í morgun á tímanum 44,98 sek. Eldra Íslandsmet Pálma var 44,13 sek. sem hann setti í Ásvallalaug í mars á ţessu ári.

Á morgun keppir Eyţór Ţrastarson í 100m. skriđsundi S11, Pálmi Guđlaugsson keppir í 100m. baksundi í S6 og Hjörtur Már Ingvarsson keppir í 200m. skriđsundi S5. Ţá verđa fjórir sundmenn í 4x100m. skriđsundi en ţeir eru Hrafnkell Björnsson, Guđmundur Hermannsson, Hjörtur Már Ingvarsson og Pálmi Guđlaugsson.

Mynd/Sölvi Logason: Hjörtur Már hefur fariđ á kostum í skriđsundi S5.

Til baka