Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra hófst í morgun og var mótið sett
formlega í aðalsal Laugardalshallar af Camillu Th. Hallgrímsson varaformanni ÍF.
Keppni er þegar hafin í bogfimi, boccia og borðtennis en síðar í dag eða kl. 15
hefst keppni í sundi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Keppni í lyftingum og frjálsum
íþróttum hefst á morgun.
Mikill fjöldi sjálfboðaliða hefur lagt á sig töluverða vinnu í undirbúningi mótsins og kann ÍF þeim bestu þakkir fyrir sitt óeigingjarna starf við undirbúninginn.
Ljósmynd/ Frá keppni í boccia í rennuflokki í
morgun.