Laugardagur 30. október 2010 08:25

Jóhann úr leik á HM: Riđillinn einfaldlega of sterkur!

Borđtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson er úr leik á Heimsmeistaramótinu í borđtennis í flokki C2. Fyrr í vikunni tók Jóhann ţátt í opnum flokki ţar sem hann datt út í fyrstu umferđ gegn ţýskum spilara.

Jóhann var afar óheppinn međ riđil ađ ţessu sinni ţar sem hann hafnađi međ fyrrum Ólympíumeistara frá Kóreu og núverandi Ólympíumeistara frá Frakklandi.

Í fyrstu umferđ lék Jóhann gegn Frakkanum Vincent Boury og tapađi 3-0. Frakkinn lék svo gegn Kóreumanninum Kyung Mook Kim og lá sá franski 3-0 svo á brattann var ađ sćkja fyrir Jóhann gegn Kóreumanninum. Svo fór ađ Kyung Mook Kim hafđi betur 3-0 og Jóhann úr leik en hinir tveir komnir áfram.

Jóhann hefur ţví lokiđ ţátttöku sinni á HM ađ ţessu sinni og er vćntanlegur heim til landsins í byrjun nóvembermánađar.

Til baka