Félag CP á Íslandi og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins bjóða til fyrirlestrar miðvikudaginn 9. febrúar, kl. 16:30 á Grand hótel Reykjavík. Fyrirlesturinn er öllum opinn og heitir:
„FROM NEUROPLASTICITY TO PRACTICE APPLICATION
- Introducing a web based individualized training and learning system”
„Að læra og þjálfa í sýndarveruleika”
Kynnt verður hugmyndafræði að baki nýrrar aðferðar við þjálfun einstaklinga með CP. Fyrirlesari er Peder Esben Bilde, framkvæmdastjóri Helene Elsass Center í Kaupmannahöfn. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
Allir áhugasamir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Fundarstjóri: Solveig Sigurðardóttir, barnalæknir