Mánudagur 14. febrúar 2011 10:54

Fatlađir sundmenn settu 12 Íslandsmet á Gullmóti KR

Fatlađir sundmenn tóku ţátt í Gullmóti KR um síđastliđna helgi og lönduđu 12 Íslandsmeistaratitlum.

Gullmót KR var haldiđ helgina 11.-13.febrúar og var eitt af skráđum lágmarkamótum IPC. Umgjörđinn var frábćr og öll sundlaugaumgjörđin var til fyrirmyndar.

Fyrst til ţess ađ setja Íslandsmet á föstudeginum var Thelma Björg Björnsdóttir, S 6 í 50 metra skriđsundi á tímanum 44.80 sekúndum. Nćstur var Pálmi Guđlaugsson S 7 í 50 metra baksundi á tímanum 48.43 sekúndum. Nćstur var Jón Margeir Sverrisson S 14 sem setti Íslandsmet í 800.metra skriđsundi 9.43.18 og 1500 metra skriđsundi á tímanum 18.22.09. Föstudeginum lauk svo međ öđru Íslandsmeti hjá Pálma Guđlaugsyni ,S 7 í 1500 metra skriđsundi á tímanum 25.13.25 mín.

Laugardagurinn fyrri hluti byrjađi vel og fyrst til ţess ađ setja Íslandsmet var Thelma Björg Björnsdóttir S 6 í 200 metra skriđsundi á tímanum 3.35,85mín og 400 metra skriđsundi á tímanum 7.17.30mín. 

Seinni hluti Laugardagsins kom fyrsta Íslandsmetiđ hjá Guđmundi Hákoni Hermannssyni S 9 í 200 metra baksundi á tímanum 2.59,76mín. Nćst kom Thelma Björg Björnsdóttir S 6 í 100 metra skriđsundi á tímanum 1.37,75.  Nćstur var Pálmi Guđlaugsson S 7 í 200 metra flugsundi á tímanum 3.28,36mín.

Sunnudagurin byrjađi vel og fyrsta Íslandsmetiđ kom hjá Pálma Guđlaugsyni S 7 í 100 metra baksundi á tímanum 1.43,37. Síđasta Íslandsmetiđ kom í 200 metra skriđsundi hjá Thelmu Björg Björnsdóttur á tímanum 3.29,72mín. 

Til hamingju međ ţennan árangur og greinilegt ađ ćfingar vetrarins eru ađ skila sér vel hjá hópnum. 

Mynd/ Thelma B. Björnsdóttir setti 5 Íslandsmet um helgina í flokki S6, flokki hreyfihamlađra en ţeir keppa í 10 flokkum, S1-S10.

Til baka