Fimmtudagur 30. júní 2011 09:33

Úrslitakeppnin hafin í golfi hjá Elínu og Sigurđi

Sigurđur Ármannsson og Elín Fanney Ólafsdóttir hófu áđan leik á ţriđja hring í golfi á Alţjóđaleikum Special Olympics í Aţenu. Bćđi keppa ţau í níu holu keppni á mótinu undir stjórn Heiđrúnar Jóhannsdóttur, eins af sigursćlustu kylfusveinum Íslands en Heiđrún er eiginkona Björgvins Sigurbergssonar, margfalds Íslandsmeistara í golfi.

Elín stendur vel ađ vígi í sínum flokki og eftir 18 holur hefur hún leikiđ á 136 höggum. Elín tók einnig ţátt í sérstöku ,,VIP“ bođsmóti ţar sem ófatlađir kylfingar léku međ keppendum í stuttri og skemmtilegri keppni undir fyrirkomulaginu Foursome. Elín lék viđ hvurn sinn fingur og var leyst út međ verđlaunum og gjöfum eftir framlag sitt.

Sigurđur hefur á brattann ađ sćkja í sinni keppni en eftir 18 holur hefur hann leikiđ á 158 höggum en kappinn hefur veriđ ađ sćkja í sig veđriđ, lék fyrst á 81 höggi og svo 77.

Mynd/ Elín á Glyfada golfvellinum ásamt Ólafi föđur sínum sem reynst hefur sleipur kylfusveinn.

Til baka