Ţeir Jóhann Rúnar Kristjánsson, Viđar Árnason og Tómas Björnsson eru allir úr leik í einstaklingskeppni á opna breska meistaramótinu í borđtennis en mótiđ er 40 punkta mót og allir helstu spilarar heimsins ţví mćttir til leiks.
Viđar og Tómas töpuđu öllum ţremur leikjunum sínum í riđlakeppninni en Jóhann var enn á ný óheppin međ riđil ţar sem Heimsmeistara og Ólympíumeistara var ađ finna í riđlinum hans. Jóhann hafđi betur 3-2 gegn Ítalanum Federico Crosara en tapađi 3-0 gegn Frakkanum Vincen Boury og svo Kóreumanninum Kim Kyung Mook.
Tvíliđaleikurinn hófst í dag ţar sem Jóhann er međ međspilara frá Slóveníu, Viđar leikur međ Bandaríkjamanni en Tómas fékk tvo ađra međspilara inn í klassa 6.
Viđ fćrum nánari fréttir af köppunum og gengi ţeirra í tvíliđaleiknum á morgun.
Mynd/ Tómas Björnsson, ÍFR, komst ekki upp úr riđlakeppninni líkt og ţeir Jóhann og Viđar.