Íţróttafélag fatlađra í Reykjavík mun standa fyrir minningarmóti í boccia laugardaginn 7. janúar nćstkomandi. Mótiđ verđur haldiđ í minningu fyrrverandi formanns ÍFR Júlíusar Arnarssonar íţróttakennara.
Eftirtöldum ađilum er bođiđ til ţátttöku í mótinu: Íţróttafélag fatlađra í Reykjavík, félagsstarf aldrađra í Garđabć, félagsstarf aldrađra hjá ÍR og félagsstarf aldrađra í Digraneskirkju. Mótiđ fer fram í Íţróttahúsi ÍFR, Hátúni 14, 105 Reykjavík og hefst laugardaginn 7. jan. kl. 10.00.
Mynd/ Júlíus Arnarsson