Fimmtudagur 29. mars 2012 13:50

Víðarr styður dyggilega við bakið á Íslandsmótum ÍF

Lionsklúbburinn Víðarr hefur um árabil gefið öll verðlaun til Íslandsmóta ÍF og í ár var engin undantekning þar á. Nýlega komu fulltrúar Víðarrs færandi hendi og afhentu ÍF gjafabréf að upphæð kr. 300 þúsund til kaupa á verðlaunapeningum.

Íþróttasamband fatlaðra færiR félögum í Lionsklúbbnum Víðarri sínar bestu þakkir fyrir velvilja og ómetanlegan stuðning í gegnum tíðina.

Á myndinni veitir Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF viðtöku gjafabréfi úr hendi Jóns Pálmasonar, formanns klúbbsins og Jóhanns Geirs Guðjónssonar formanns verkefnanefndar.

Til baka